mánudagur, janúar 30, 2006



...er að hlusta á diskinn sem þessi góði og skemmtilegi jólasveinn henti inn um bréfalúguna hjá mér á aðfangadag. Sveinki karlinn kemur svo sannarlega á óvart með skemmtilegu lagavali, tæknikunnáttu og persónulegum upplýsingum á blaðinu sem fylgdi með disknum þar sem fram koma nöfnin á lögunum og flytjendunum ásamt nokkrum línum um hvað honum finnst um þau. Takk elsku Kertansíkir, ég hef alltaf sagt að þú værir bestur. Ætti eiginlega að koma með nokkur kerti handa þér næst þegar ég kíkji í kaffi. Geri það ef ég man...

1 ummæli:

gummo sagði...

Það væri svo sannarlega góð hugmynd, maður á alltaf að vera góður við jólasveinana...