mánudagur, september 06, 2004

...skrapp í klippingu á föstudaginn og kom út með mega töff rock punk chick klippingu sem ég er mjög sátt við. Ásu fannst ekki leiðinlegt að meiga gera eitthvað svona aðeins öðruvísi, hún spurði hvað ég vildi gera við hárið og ég sagði alltaf bara eitthvað skemmtilegt og skemmtilegt varð það! :)

Föstudagskvöldið var fyrsta rólega helgarkvöld sem ég tek í allt sumar, fór ekki út úr húsi einu sinni. Hlíf Ösp kom í heimsókn og við sátum og spjölluðum og fífluðumst til kl 4:00. Skruppum svo í héraðið á laugardaginn og ég hélt að ég væri að vera lasin en bjórinn um kvöldið lagaði það eins og allt annað. Bjór er kraftaverkalyf!!! Heilsan var reyndar eitthvað vafasöm í dag, uppköst og læti en það Skjár 1 reddaði þessu með því að hafa einhverja bíómynd á dagskrá sem ég gat kúrt mig yfir. Leið betur um leið og ég fann stellingu í sófanum sem mér varð ekki óglatt í!! :S

Hej Jóna það er eitt gott við sundboli, þeir teygjast og svo eru bikiní ennþá betri því þá fær bumban að vera frjáls og "anda"vel og minni bumbulínu finnst það nú ekki leiðinlegt... ;)

2 ummæli:

Jóna sagði...

hehehe já akkúrat....það dugar líka ekkert annað en innbyggður björgunarhringur ef maður ætlar að halda sér á floti í sundi og mér gengur mjög vel í því að koma mér upp einum svoleiðis;)

Magdalena sagði...

Jæja kjútípæ, ertu dottin í bloggdvala aftur? :)