þriðjudagur, nóvember 14, 2006

...mín reif sig eldsnemma á fætur, burraði upp í iðnskóla og fékk 1 stykki ókeypis klippingu hjá henni Lindu sem ég hitti í Wow-partýinu um daginn. Hver segir svo að það borgi sig ekki að djamma? Er að spara mér 10 þús kall! Er mjög ánægð með útkomuna og núna sést loksins þokkalega framan í mig. Hvort það er bót eður ei verðið þið bara að ákveða sjálf en svarið er ei þá vinsamlegast haldið því fyrir ykkur sjálf!

Plan kvöldins er að fara í bíó og sjá hann Borat. Það er víst algjör nauðsyn að sjá hann gera grín af ameríkönum. Varla að maður tími samt að fara, 900 kall fyrir bíómiða er náttúrulega bara fáranlegt verð...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jú víst, þú nennir alveg

Nafnlaus sagði...

BORAT ER BESTUR....
en hæ :)

Nafnlaus sagði...

Jæja hvað segirðu, er þessi Borat eitthvað sem maður tímir að fara á í bíó ??
Er svona á báðum áttum sko....

gummo sagði...

hehe Borat er trúður...ég var á tímabili ekki viss um hvort ég ætti að hlæja eða gráta...shit hvað hann er klikk...hahhahaha held hann sé bara dvd material Evert minn. En ansi hreint er þetta góð hugmynd Frænka...nemaklipping...þarf að gera e-ð í mínu...er farin að ganga með tagl aftur!!!! sheisse segir mar bara...

Nafnlaus sagði...

MYnd kona :D