fimmtudagur, ágúst 04, 2005

...kerlan komin aftur í borgina eftir heila viku í blíðunni fyrir austan. Skrapp og kíkti á framkvæmdirnar við Kárahnjúka og át ís á Egilsstöðum og túristaðist svolítið með foreldraparinu mínu. Var í góðu yfirlæti og borðaði kökur og góðan mat og fékk vöfflur hjá ömmu og svona þannig að það er ekki yfir neinu að kvarta. Hefði auðvitað verið gaman að vera rosalega hress og vera úti á lífinu en það var líka bara gott að vera bara heima með mömmu og pabba og slappa af! :)

Var boðið á forsýningu The Fantastic Four í gær og það var rosa gaman eins og alltaf þegar farið er í bíó. Mér fannst myndin skemmtileg og fyndin og hef ekki yfir neinu að kvarta en ég hef auðvitað aldrei lesið neitt um þetta svo ég hef heldur engan samanburð. Það var líka gaman að fara eitthvað aðeins út því ég hef varla farið út á meðal manna síðan uppskurðurinn var og hvað þá klætt mig upp svo ég gellaði mig pínu smá upp, ekkert mikið samt! ;) Það bíður nenfilega til morguns að gella sig almennilega upp því þá er mér boðið í kokteilpartý til SúperMöddu. Get ekki mætt eins og drusla þegar ég mæti í fyrsta skipti heim til hennar. Spurning hvernig maginn taki þessari heimsókn því síðast þegar ég ætlaði til hennar var daginn sem ég var lögð inn á spítalann!!! ;)

En núna er best að fara að koma sér betur fyrir því ég ætla að kíkja á Madagaskar, auglýsingin lofar góðu svo það er eins gott að myndin standi undir væntingum...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

If you are alone, call this number 800-211-9293. Connect with Real Singles from your local area instantly for only $0.99/min with a $4.99 connection fee. A true Match is only one phone call away 800-211-9293. Meet people with common interests and desires now. Check it out. 800-211-9293

Sirrý Jóns sagði...

...hmmmm virka ég svo rosalega einmanna að ég þurfi hjálp???

Magdalena sagði...

hahahhahahaaha, þvílík snilld

Nafnlaus sagði...

Trust fund set up for soldier's children
AJC reporter Moni Basu and photographer Bita Honarvar will be filing reports and photos from Iraq ... Two of Warren's nine siblings made the announcement on Tuesday during a press conference at the Gwinnett Justice and Administration Center in Lawrenceville.
Hi, Nice work over at your blog.

My site work at home may be of interest to you. Come over for a visit where you can learn a bit more about issues dealing with work at home .

Sirrý Jóns sagði...

...hvað er að gerast??? Ég er ótrúlega vinsæl, ætti kannski að setja eitt lítið comment "Æj dónt spík ínglishh" og athuga hvort þetta hættir þá ekki!! Þetta er nú frekar anójíng...

Nafnlaus sagði...

hæ skvís!:D Ég er komin heim!:D ííííí!

En segðu það bara;) Það gekk hjá mér um daginn svo að það hlýtur líka að ganga hjá þér;)