mánudagur, ágúst 20, 2007

...ok mjög langt síðan síðasta bloggfærsla var en vott ðe hekk ég var í sumarfríi! Var á Seyðó í 6 vikur að hafa það rosalega gott, var einmitt þar um versló og það var mjög gaman, fullt af fólki úti og dj-ar og allur pakkinn. Svo kom ég suður aftur og fór á gay-pride, gönguna, út að borða og ballið. Má engu slepp sko! Svo slappaði ég af í nokkra daga og svo var afmælispartý og annað partý daginn eftir svo það var nóg að gera. En þetta er í góðu lagi því þ að er ennþá sumar og alvaran tekur ekki alveg strax við aftur.

Vorum að skoða íbúð áðan og festum okkur hana, skrifum undir á morgun. Hún er á Miklubraut og bara nokkur skref frá Móu þegar hún er á klakanum. :) Er í kjallara og lágt til lofts en allt annað alveg dásamlegt og flott og nýtt og súper bara.

Svo er ég að fara til Danmerkur ekki á morgun heldur hinn. Ætla í bryllup og sól og bjór og búðir. Ég hlakka mjög til en alltaf þarf að vera eitthvað annað sem mann langar að gera líka. Núna er Hlíf Ösp á Íslandi og ég missi af henni því ég verð í Danmörku, svo ég þarf bara að halda áfram að safna og reyna að fara sem fyrst í Svíþjóðarferð. Reyndar getur verið að við náum að hittast í nokkrar mínútur kvöldið sem ég kem heim en hún fer einmitt fyrir hádegi næsta dag.

En já bara gleði gleði hérna megin, eina sem ég kvíði fyrir að borga svona miklu meiri leigu en ég er vön. Það er vont en það venst...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Var farin að spá hvað hefði orðið af þér sæta hahah gott að það er allt gott að frétta og skemmtu þér vél í brylluppinnu :)

Nafnlaus sagði...

hhihi ég kíkti hingað inn í gær & ekkert blogg lengi lengi, ætlaði svo að koma núna & "skamma" þig en hvað, komið blogg bara :D góða ferð snúlla.... Hafðu það gott í danaveldi

Nafnlaus sagði...

hlakka til að sjá þig:)
gott að vita af þér í nágreninu þegar ég verð á landinu:)