þriðjudagur, nóvember 27, 2007

...mér er illt í mænunni...
í orðsins fyllstu merkingu, hlýtur að vera lægð yfir Íslandi...eða what ever...!!! Er vöknuð snemma að venju *hóst*, hef reyndar verið að vakna snemma undanfarið en verð svo þreytt á þessu annaðslagið að ég sef í svona sólarhring á milli, er það ekki bara sniðugt?? Jújú. Borðaði súkkulaði rúsínur í morgunmat og það var gott, er á svo miklum túr að ég á það alveg skilið, held að pampers sé málið í dag! Er að bíða eftir að geta farið að vekja manninn minn því ég er að vera einmanna, búin að hanga í tölvunni í 2 tíma. En hann má víst sofa út því fyrirlestrinum í morgun var aflýust, heppni og einmitt þegar ég var búin að vera með rosalega ræðu um að vera duglegur í skólanum. Var að reyna að hringja í múttu mína áðan svo við gætum fengið okkur morgunkaffi saman en hún svaraði bara ekki, hefur örugglega þurft að fara á aukavakt, alltaf nóg að gera í HSA - eldhúsi. Fer alveg að ákveða hvenær ég fer austur, fékk fréttir í gær um að læknirinn sem tók við af lækninum mínum tók ekki við öllum sjúklingunum hans. Hefði kannski verið hægt að láta vita aðeins fyrr því ég er búin að reyna að vera að fá tíma síðan í lok ágúst!!! Svo nú get ég leitað eitthvað annað og þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu þegar ég panta flugfarið mitt. Vildi bara óska að Gunnar kæmist með austur en hann ætlar að vera geðveikt duglegur að læra og svo geðveikt duglegur að vinna á jólamarkaðinum hjá Nexus svo hann eigi fyrir fallegum jólapakka handa konunni sinni. Hahahaha skrifaði fyrst fólapakka, ég er líka óttalegt fól...

6 komment:

inga Heiddal sagði...

Hæ Sigríður mín
ég þekki þig náttúrulega bara undir þ´vi nafni kannski er það af því að mamma þín var alltaf að skamma þig þegar þú varst lítil :)
velkomin á síðuna mína og þá veit ég um þína núna heilsur til mömmu og pabba þegar þú heyrir í þeim kb Inga fRIDDA

gs sagði...

fatlafól þá?

móa sagði...

áður en þú ferð austur ættiru að banka upp á hjá mömmu og sækja jólaglaðininginn þinn þangað:) ég náði ekki að pakka honum inn :/

móa sagði...

áður en þú ferð austur ættiru að banka upp á hjá mömmu og sækja jólaglaðininginn þinn þangað:) ég náði ekki að pakka honum inn :/

Mamma sagði...

Bara að kvitta, var að fara bloggrúntinn fyrir svefninn. Ástarkveðjur
Mamma.

Eduardo Mario sagði...

I've stopped here by chance :). I don't understand a word of what are you talking about but well I just want to say Hi.
My best wishes from Argentina.
Regards
Eduardo
emgonshido@hotmail.com